Domaine de Villemajou Blanc 2011

Domaine de Villemajou í Corbieréres í Languedoc er hið upprunalega fjölskylduvínhús Bertrand-fjölskyldunnar, sem Georges Bertrand, faðir Gerard Bertrand, festi kaup á.

Hvítvínið  er blanda úr þremur suður-frönskum þrúgum, Marsanne, Rousanne og Bourbolenc. Sæt sítrusangan, ferskjur, hvít blóm, töluverð eik, þykkt, feittt og örlítið ristað, reykur og vanilla. Virkilega flott vín.

3.299 krónur.

Deila.