Peter Lehmann Futures Shiraz 2011

Fyrsta vínið sem Peter Lehmann framleiddi var kallað “Futures” og var selt í eins konar framvirkum viðskiptum til vina og kunningja sem vildu styðja við bakið á honum og voru reiðubúinn að borga vínið þótt þau fengu það ekki afhent fyrr en tveimur árum síðan. Nú er Lehmann með öflugustu framleiðendum Ástralíu og vínið sem ber nafnið Futures skipar ávallt sérstakan sess í framleiðslu fyrirtækisins.

Dökkt og massívt á litinn, svarblátt, mjög krydduð angan, reykur, rykugt, vanillusykur og dökkt súkkulaði, svartur, sultaður ávöxtur, plómur. Þykkt, feitt og djúpt í munni, ávöxturinn heitur, kryddaður, anís, kröftug en mjúk tannín.

3.199 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.