Chateau l’Hospitalet Grand Vin 2012

Chateau l‘Hospitalet er eitt af djásnunum í eignasafni Gerard Betrand. Þarna eru höfuðstöðvar hans og þarna heldur hann árlega mikla jasshátíð sem dregur til sín heimsþekkta tónlistarmenn. Landareignin er í hæðunum rétt vestur af borginni Narbonne og teygja ekrurnar sig þar í átt að Miðjarðarhafinu. Allt um kring eru ekrurnar umluknar klöppum (svæðið heitir meira að segja la Clape) þaktar garrigue-gróðri, villtum rósmarínrunnum og öðrum lágreystum gróðri sem að berst við að lifa af í þessu þurra og hrjóstruga umhverfi.

Líkt og á öðrum helstu vínhúsum sínum framleiðir Bertrand þrjá flokka af víni á Hospitalet. Annars vegar Chateau-vín líkt og það sem er fáanlegt hér frá Sauvageonne og Villemajou, þá „Grand Vin“ sem er vín af þrúgum af bestu runnunum og síðan ofurvín af litlum smáskika einnan eignarinnar.

L‘Hospitalet Grand Vin 2012 er dökkt, nær svart á lit. Þurrkuð krækiber, sólber, eikað og reykað, þarna er mikil jörð angan af garrigue, kryddum og blómu Miðjarðarhafsins, heitt og djúpt, stór, þroskuð tannín, aflmikið vín en mjúkt. Frábært vín.

5.399 krónur.

Deila.