Villa Conchi Brut Seleccion

Spænsku Cava-freyðivínin geta verið ansi hreint góð, ekki síst frá minni framleiðendum sem að leggja mikið í framleiðsluna. Villa Conchi er eitt af þessum blanda úr Xarello, Macabeo, Parellada og Chardonnay. Vínið er gert með kampavínsaðferðinni, það hefur þokka og bara töluverðan elegans. Tært, með ferskri hreinni ávaxtangan, sítrus, smá brioche, smá möndlur, ferskt og stílhreint í munni, með þægilegri sýru. Verulega gott cava.

1.990 krónur. Frábær kaup.

Deila.