Gott kartöflusalat er frábært meðlæti með svo mörgu, ekki síst grlllmatnum. Hér er eitt fljótlegt og gott.
- 800 g kartöflur
- 2 dl heimagert majonnes
- 2 harðsoðin egg
- 1 sellerístilkur, fínsaxaður
- 2 msk Dijon-sinnep
- 2 dl saxaðar sýrðar agúrkúr
- 2 msk capers, saxið
- 1 væn lúka af fínt saxaðri flatlaufa steinselju
- safi úr 1/2 sítrónu
- salt og pipar
Sjóðið kartöflurnar og leyfið að kólna. Flysjið og skerið í bita. Saxið eggin. Saxið grænmeti og kryddjurtir. Setjið í skál og blandiði saman við majonnesið og sinnepið. Kreistið sítrónusafann yfir og hrærið saman. Bragðið til með salti og pipar. Geymið í ísskáp þar til borið er fram.
Fleiri uppskriftir að kartöflusalati má finna með því að smella hér.